...er svo sannarlega að taka völdin í borg dauðans (akureyri) þessa
dagana og þurfti ég í bókstaflegri merkingu að MOKA upp bílinn minn
í morgun með litlu sætu kúst-sköfunni minni, ekki aaalveg að gera
sig!
En, maður lætur sig hafa það...
Einnig fann ég til svo gífurlegs tilgangsleysis að kvöldi
mánudagsins síðastliðins að ég brunaði útí Bjarg, sem er
líkamsræktarstöð hér í bæ (nánar tiltekið Bugðusíðu 1), og keypti
mér mánaðarkort fyrir orlofspeninginn minn!
Kostaboð á líkamsræktarkortum alveg hreint, mánuður í
líkamsræktarsalinn og alla tíma sem maður hefur lyst á (spinning,
body pump, body step o.s.frv.) á aðens 6500! Strax og ég hafði
lokið við að gera þessi kjarakaup skellti ég mér á hlaupabrettið og
horfði á einn melrose place þátt eins og ekkert væri! Ótrúlegt hvað
það er auðvelt að hafa ofanaf fyrir manni!
Svo var mín bara að rúlla inn úr body attack tíma í þessum töluðu
orðum! Snilldar tími, þolæfingar og styrktaræfingar!
Svo er planið að skella sér spinning, body pump eða body balance á
morgun... maður veit ekki hvað verður fyrir valinu! Allt mjög
spennandi!

Ég vildi að Ásta Hlín væri hér...
Eeeen nóg um það...
Frammundan þessa helgi er bara vinna... en mér er farið að leiðast
það mikið í vinnunni þessa dagana að ég er farin að horfa á
Anchorman oft á vakt, enda besta mynd í heimi!
anyways...svo veit maður aldrei hvað gerist, kannski skellir maður
sér bara austur í sæluna helgina eftir og liggur uppí sófa, eeeða
jafnvel fær sér einn öllara eða tvo! Hver veit... það er nú einu
sinni löng helgi, eða öllu heldur frí vegna "Helga Magra" dagsins,
ekki veit ég nú hver Helgi magri er, en hann var eflaust hress
kall, og greinilega grannur! Sem er.... jahh... gott?
Maður spyr sig... eða jafnvel sif? Það er orðið svo langur listi
sem ég þarf að fara að spyrja hana sif að, það er eins gott að hún
sé klár stelpa!
Minni á America's next top model kl: 21:00, gríðarleg spenna í
gangi!
yfir og út...
Kata Magra?